top of page

Fréttaveitan

Við leggjum upp á að halda heildar yfirsýn. Því er mikilvægt að þú sért með á hreinu hvað er á döfinni fyrir fyrirtækið þitt. Hér fyrir neðan eru nýjustu skilagreinar hvort sem um er að ræða frá RSK eða tilfallandi liðir. Við leggjum okkur fram að hafa alltaf nýjustu upplýsingar hér fyrir neðan að hverju sinni.

Uppgjörstímabil virðisaukaskatts eru tveir mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október, nóvember og desember.

Skil á gögnum til okkar er fyrir 10. hvers mánaðar eftir hvert tímabil. Til dæmis gögn vegna Janúar og febrúar eiga að berast okkur fyrir 10. mars.

Gjalddagi virðisaukaskatts er einum mánuði og fimm dögum eftir lok hvers almenns uppgjörstímabils. Til dæmis er gjalddagi vegna janúar og febrúar 5. apríl.

Virðisaukaskattskil

810_6974web.jpg

Skil á staðgreiðslu

Skil á staðgreiðslu er 15. hvers mánaðar. Mikilvægt er að skila staðgreiðslu í hverjum mánuði.

15.jpg

Skattþrep 1: Af tekjum 0 – 498.122 kr.  31,45% 

Skattþrep 2: Af tekjum 498.123 - 1.398.450 kr.    37,99% 

Skattþrep 3: Af tekjum yfir 1.398.450 kr.  46,29% 

Skatthlutfall barna (fædd 2011 eða síðar) af tekjum umfram 300.000 kr. á ári.6%

Persónuafsláttur á mánuði  72.492 kr.

Persónuafsláttur á ári  869.898 kr.

Smelltu á hnappinn fyrir frekari upplýsingar inni á RSK.

Skatthlutfall, skattþrep og persónuafsláttur ársins 2026

810_6948web.jpg

Skattadagatal

Í janúar þarf að gera skil á hlutafjármiðum og launamiðum fyrirtækja. Síðasti skiladagur er 20 janúar. Við sendum þér póst um leið og við höfum skilað inn miða fyrir fyrirtækið þitt. 

  • Facebook

©2026 by Bókvistun.

bottom of page